Ma Po-tófú

1 pakki mjúkt tófú

20 g þurrkað tófúhakk, lagt í sjóðandi vatn

1 rauður chili-pipar

1 msk. saxað engifer

1 msk. saxaður hvítlaukur

kóríander

Skerið tófúið í litla teninga. Skerið niður chili og marínerið sojahakk í sojasósu og sesamolíu. Hitið olíu á pönnu. Steikið engifer, hvítlauk og chili. Bætið tófú við og steikið vel. Bætið sojahakkinu við.

Sósa

1 msk. sojasósa

1 tsk. chilisósa

1 tsk. hunang

2 tsk. maísmjöl og 1/2 skál vatn

Blandið sósuna vel og bætið henni við. Látið malla í smástund uns sósan er orðin þykk. Setjið nokkra dropa af sesamolíu. Skreytið með kóríander og berið fram með hrísgrjónum.