Krydduð linsubaunabuff

1 rauðlaukur
1 stór gulrót
1/2 græn paprika
1/2 rauð paprika
2 hvítlauksgeirar
2 msk ólífuolía
200 g linsubaunir, brúnar eða grænar
1 lárviðarlauf
2-3 msk steinselja, söxuð (má sleppa)
1 tsk kóríanderfræ, möluð
1/2 tsk chili-flögur eða eftir smekk
nýmalaður pipar
salt
50 g þurrt brauðrasp, eða eftir þörfum
olía til penslunar

Saxið rauðlaukinn og skerið gulrótina og paprikurnar í litla teninga. Saxið hvítlaukinn smátt. Hitið olíuna í potti, setjið rauðlaukinn út í og látið hann krauma í 2-3 mínútur við meðalhita. Bætið gulrót, papriku og hvítlauk út í og látið krauma í 5 mínútur í viðbót án þess að brúnast. Hrærið linsubaunum saman við, setjið lárviðarlaufið út í  og hellið síðan 1/2 l af vatni yfir. Hitið að suðu og látið malla í opnum potti við fremur hægan hita í 20-25 mínútur, eða þar til baunirnar eru rétt tæplega meyrar og nær allur vökvi gufaður upp. Bætið við svolitlu vatni á suðutímanum ef uppgufun er of mikil. Látið blönduna kólna ögn en fjarlægið svo lárviðarlaufið, hellið öllu saman í matvinnsluvél og látið hana ganga þar til blandan er orðin að grófu mauki. Kryddið með kóríanderfræi, chili, pipar og salt eftir smekk. Bætið síðan við nægilega miklu raspi til að þykkja blönduna svo mikið að unnt sé að hnoða hana með höndunum. Kælið deigið í hálftíma og hitið á meðan ofninn í 200°C. Mótið 1 sm þykk buff úr deiginu, penslið þau með olíu á báðum hliðum og raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu. Bakið þau ofarlega í ofni í 12-16 mínútur, eða þar til þau eru farin að taka lit og yfirborðið er stökkt. Einnig má steikja buffin á pönnu í svolítilli olíu. Berið þau fram t.d. með tómat-kryddjurtasósu og soðnu grænmeti eða salati.