Kirsiberjatómatar í balsamediksósu

250 g kirsiberjatómatar
2 msk ólífuolía
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
2 msk balsamedik
100 ml vatn
1-2 tsk pestósósa
1 tsk sykur, eða eftir smekk
nýmalaður pipar
salt

Kirsiberjatómatarnir pikkaðir með beittum hnífsoddi, 2-4 sinnum hver
tómatur. Olían hituð á pönnu og tómatarnir settir á hana ásamt hvítlauknum.
Látnir krauma í 2-3 mínútur við góðan hita og pannan hrist öðru hverju.
Edikinu ýrt yfir og það látið sjóða í um 1 mínútu. Vatninu hellt á pönnuna,
hitað að suðu og pestósósu, sykri, pipar og salti hrært saman við. Látið
sjóða í um 5 mínútur, eða þar til sósan er farin að þykkna svolítið og
tómatarnir eru við það að byrja að soðna í sundur en halda þó enn lagi.
Smakkað til og borið fram.