Kínverskir drekavængir í blóði
Fyrir 4
1 stk. hart tófú
(drekavængir)
1-2 stk. paprika
(gul, rauð eða græn)
1-2 stk. gulrætur
kínversk chilisósa (sterk)
1 msk. sykur
2 msk. sojasósa
(má nota salt í stað
sojasósu)
1 stk. vorlaukur
sveppir, eftir smekk
chili
hnetur og kóríander (eða bara það grænmeti sem til er í ísskápnum)
Kryddið grænmeti eftir smekk. Skerið tófú og grænmeti í litla bita. Hitið
matarolíu á pönnu og setjið tófú á pönnuna þegar olían er orðin heit. Ekki
ofsteikja. Snúið tófúinu á pönnunni þegar það fer að gulna og náið sama lit
báðum megin; takið það þá af pönnunni og setjið á disk. Setjið grænmetið á
pönnuna og léttsteikið í tvær mínútur (lækkið hitann um helming eftir tvær
mínútur). Setjið tófúið aftur á pönnuna með grænmetinu og tveimur matskeiðum af
sojasósu, einni matskeið af sykri og
loks chilisósu (ekki of mikið). Steikið í þrjár til fimm mínútur og þá er
rétturinn tilbúinn.