Kartöfluréttur Pascolo-fjölskyldunnar

1.2 kg kartöflur, meðal stórar
150 g beikonskinka, frá SS
3 stk hvítlauksrif, pressuð
2½ dl rjómi
2 dl ostur, rifinn gouda-ostur
2 msk ólífuolía
1½ dl blaðlaukur, niður skorinn
1 tsk smjör, innan í mótið

Undirbúningur
Pressið hvítlauksgeirana og skerið niður blaðlaukinn. Rífið síðan goudaostinn og skerið beikonskinkuna í bita.

Matreiðsla
Blandið hvítlauknum saman við olíuna. Afhýðið kartöflurnar og skerið þær í sneiðar. Smyrjið ofnfast mót með smjöri. Raðið kartöflusneiðum á botninn og berið á þær hvítlauksolíu. Hvítlaukurinn má vel fylgja með. Setjið blaðlauk ofan á og síðan ost, salt, pipar og skinku. Þá kemur nýtt lag af kartöflum og síðan koll af kolli þar til að mótið er orðið fullt. Efst á að vera kartöflulag. Hellið rjómanum út á. Bakið réttinn í 225°C heitum ofni í 45 mínútur.