KARTÖFLUKLATTAR
Olía til steikingar
500 gr soðnar kartöflur flysjaðar
1 tsk. chilli
1 tsk. kóríanderduft
½ tsk. kardimommuduft
1 msk. tómatpúré
½ bolli frosnar grænar baunir
2 msk. ferskur kóríander saxaður
2 tsk. salt
1 egg hrært
Aðferð:
Stappið kartöflur. Hrærið öllu hráefni nema eggi saman við með sleif. Mótið
litla klatta og veltið upp úr eggi. Steikið á heitri pönnu í um 2 mínútur á
hvorri hlið.