Kartöflubollur

5 dl vatn
400 g hveiti (má auðvitað nota spelthveiti)
300 g heilhveiti
1 bréf þurrger
½ tsk. salt
½ dl ólífuolía
200 g kartöflur (soðnar og stappaðar)
hörfræ

Aðferð:
Smá fjallagrös sett í volgt vatn til að mýkja þau og brytjuð smátt. Hafið vatnið ylvolgt, setjið allt í bökunarvél, hrærivél eða hnoðið, látið hefa sig í klukkustund, mótið þá kúlur setjið pískað egg eða mjólk ofan á og slatta af fræjum, bakið í 210 gráðu heitum ofni í 15- 20 mín. Ef tími gefst til þá er gott að hnoða deigið upp og láta hefa sig aftur í hálftíma.