Jólahnetusteik Á næstu grösum
fyrir 4-6

450 g soðnar linsubaunir
200 g soðin hrísgrjón
200 g siðið hirsi
150 g valhnetur, ristaðar
100 g möndlur, ristaðar
80 g laukur
1/2 tsk steinseljubúnt
80 g gulrætur
1/2 stilkur sellerí
2 tsk hvítlauksolía
2 msk ólífuolía
1/2 tsk timjan, þurrkað
2 msk tamari-soja
1/2 tsk túrmerik
Chiliduft á hnífsoddi
Salt eftir smekk

Allt hakkað saman í matvinnsluvél nema linsubaunirnar. Linsurnar hnoðaðar saman við í höndunum. Sett í smurt brauðform og því lokað með álpappír, bakað við 160°C í 35 mín. Álpappírinn tekinn af og hitinn lækkaður niður í 150°C og bakað áfram í 10 mín. Tekið út og látið standa í 15 - 20 mín áður en steikinni er hvolft úr forminu á fat. Góð sveppasósa er algjört skilyrði með steikinni og gott er að hafa rótargrænmetissalat eða gljáð grænmegi með. Annars gengur allt hefðbundið jólameðlæti með.