Indverksur kartöflupottréttur með spínati

800 gr nýjar kartöflur skornar í 4-6 bita eftir stærð
1 laukur, skorinn í sneiðar
200 gr spínat hreinsað
5 hvítlauksgeirar
3 cm engifer, miðlungsþykkt, skrælt
2 tsk rauður chilipipar, fræhreinsaður
1 tsk turmerik
1 msk svört sinnepsfræ
olía
salt og pipar
ferskur kóríander, gróft saxaður

Aðferð
1. Kartöflurnar eru bakaðar í ofni, kryddaðar með salti og pipar
2. Hvítlaukur, engifer og chilipipar ásamt smá olíu er sett í blandara og maukað
3. Sinnepsfræ eru ristuð í potti, eða þar til þau eru farin að poppa, en þá er olía sett út í og síðan laukurinn og engifermaukið. Þetta er svitað aðeins en þá er turmerikið sett í og síðan kartöflurnar þegar þær eru tilbúnar. Smá vatn er sett í pottinn til að bleyta aðeins í réttinum, spínat er sett alveg í lokin og kóríander stráð yfir.