Hrísgrjón og rauðar baunir (Arroz y frijoles colorados)
1 msk olía
1/2 laukur, saxaður smátt
1 hvítlauksgeiri, saxaður
1/4 rauð paprika, fræhreinsuð og söxuð smátt (eða 1 tómatur, saxaður)
200 g hrísgjrón
1/4 tsk timjan
400 ml kókosmjólk, niðursoðin
vatn eftir þörfum
nýmalaður pipar
salt
1 dós rauðar nýrnabaunir
Olían hituð í potti og laukur, hvítlaukur og
paprika látið krauma í henni í
3-4 mínútur án þess að brúnast. Hrísgrjónin sett út í ásamt timjaninu og
hrært þar til þau eru þakin olíu. Þá er kókosmjólkinni hellt út í og síðan
dálitlu vatni, hitað að suðu og látið malla við hægan hita í um 15 mínútur.
Þá eru grjónin krydduð með pipar og salti. Baununum hellt í sigti og látið
renna vel af þeim og síðan hrært saman við grjónin og látið malla í 5
mínútur í viðbót. Vatni bætt við ef þarf og hrært öðru hverju, en grjónin
eiga að hafa sogið í sig allan vökva þegar suðutímanum lýkur.