Hrísgrjónapílaf með linsubaunum
125 g grænar linsubaunir (ég notaði Puy-linsur)
4 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður smátt
2 tsk kóríanderfræ, steytt
1/4 tsk allrahanda, steytt
3 lárviðarlauf
1 tsk oregano
250 g gulrætur, skornar í bita
175 g hrísgrjón, langkorna
500 ml sjóðandi vatn
1 msk rauðvínsedik
2 tsk hunang
nýmalaður pipar
salt
1/4 sítróna
Ef ekki eru notaðar Puy-baunir er líklega
vissara að leggja þær í bleyti í
1-2 klst og láta svo renna vel af þeim. Olían hituð í potti og laukurinn
látinn krauma við meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Kryddinu
og kryddjurtunum hrært saman við ásamt gulrótunum og hrært. Eftir um 2
mínútur er hrísgrjónunum bætt í pottinn og hrært þar til þau eru þakin olíu
og farin að hvítna. Baununum bætt út í og síðan vatni, ediki, hunangi og
dálitlum pipar. Hitað að suðu, lok sett á pottinn og látið malla við vægan
hita í um 15 mínútur. Þá er pílafið saltað, slökkt undir pottinum eða hann
tekinn af hellunni og látinn standa óhreyfður í 20-25 mínútur. Ef pílafið
hefur ekki sogið í sig allan vökvann er látið renna af því í sigti áður en
það er borið fram. Sítrónusafi kreistur yfir pílafið og það e.t.v. skreytt
með saxaðri steinselju. Gott er að hafa með því jógúrt eða tzatziki.