Hrísgrjónahringur með grænmetisblöndu

10 perlulaukar eða 2 laukar
2 hvítlauksrif, skorin í þunnar sneiðar
1 msk. smjör
2 msk. fersk basilika, söxuð
½ tsk. oreganó
½ dl söxuð steinselja
½ dl saxaður graslaukur
½ tsk. svartur pipar
1 tsk. jurtasalt
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dós niðursoðnir ætiþistlar
3 dl ósoðin hrísgrjón

Takið utan af perlulauknum og skerið hvítlaukinn í sneiðar. Bræðið smjörið á pönnu og mýkið perlulaukinn í því í 3-4 mínútur. Bætið hvítlauknum og kryddinu saman við og látið krauma í nokkra mínútur. Hellið tómötunum og safanum yfir og sjóðið þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið þá ætiþistlunum út í og látið suðuna koma upp. Sjóðið hrísgrjónin í saltvatni og setjið þau í vel smurt, kringlótt form. Látið mesta hitann rjúka úr hrísgrjónunum og hvölfið þeim síðan varlega úr forminu á fat. Hellið grænmetisblöndunni í miðjuna og berið réttinn fram með brauði og osti.