Gulrótarbuff - fljótleg og auðveld
3/4 ltr rifnar gulrætur
1-2 laukar
1 1/2 dl sojamjöl
1 1/2 dl bókhveitimjöl
1 tsk jurtasalt
1 tsk góð kryddblanda -t.d. frá pottagöldrum
kaldpressuð ólífuolía eða kaldpressuð canola olía til steikingar
- gulræturnar og laukurinn eru rifið frekar
fínt og settar í skál
- mjölinu og kryddinu er bætt útí og þetta hnoðað í höndunum þar til að þetta
helst vel saman
- mótið lítil og flöt buff
- hitið olíu á pönnu
- setjið buffin á heita pönnuna og steikið báðum megin þar til gullin
- þið getið líka sleppt því að móta buff og notað matskeið við að setja farsið á
pönnuna
- gott að bera fram með fersku salati og gufusoðnu brokkolíi eða öðru grænmeti
og kaldri sósu