Gulrótar- og hnetubaka
Fylling
1 kg gulrætur, skornar í teninga
½ kg sætkartöflur, í teninga
200 g laukur, saxaður
3 stk. hvítlauksrif, kramin
200 ml kókosmjólk
200 ml rjómi
1 msk. graskersfræ
1 msk. saxaðar pekanhnetur
½ msk. timjan, ferskt (eða ¼
msk. þurrkað)
½ búnt steinselja, söxuð
5 egg
Bökudeig
8 msk. kalt smjör, í litlum bitum
300 ml hveiti
salt
5-6 msk. ískalt vatn
Búið til deig. Setjið hveiti og salt í blandara ásamt smá af smjöri og hakkkið
saman, bætið smjöri smátt og smátt saman við þar til það lítur út eins og gróft
haframjöl. Bætið þá vatni saman við og hakkið áfram þar til myndast stórar
bollur. Takið deig upp úr skálinni, setjið á hveitistráð borð og mótið kúlu með
höndunum. Gott að kæla deigið í 15 mínútur áður. Fletjið deig út í stóran hring.
Gott er að fletja deig það vel út að það sé aukahringur utan um formið. Setjið
deig í frysti í 30 mínútur. Leggið síðan smjörpappír eða álpappír í deigbotn og
fyllið með baunum og bakið við 200-210°C í 15 mínútur. Takið baunir úr og
hendið. Setjið deigbotn aftur í ofn og bakið í um 5 mínútur. Takið þá til við
fyllingu. Léttsteikið lauk og hvítlauk í djúpum potti. Á meðan eru gulræturnar
forsoðnar. Þegar laukur er mjúkur er kókosmjólk og rjóma bætt við ásamt sætu
kartöflunum, kryddi, salti og pipar. Soðið vel saman. Þegar kartöflur eru næstum
meyrar er gulrótum bætt við og soðið áfram í nokkrar mínútur. Kælt og eggjum,
fræjum og hnetum bætt við. Bakið við 150°C í 30-40 mínútur eða þar til fyllingin
hristist ekki í deigskálinni. Berið fram með salati og kotasælu.
