Grilluð eggaldin og kúrbítur
1 kúrbítur
1 eggaldin, eða nokkur smávaxin
100 ml ólífuolía
3-4 msk ferskt timjan, saxað
3-4 msk fersk minta, söxuð (nota má aðrar kryddjurtir)
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
nýmalaður pipar
salt
Kúrbíturinn skorinn í 1 cm þykkar sneiðar og
eggaldinið einnig, ef notað er
venjulegt eggaldin. Olía, kryddjurtir, hvítlaukur, pipar og salt hrært saman
í skál og grænmetið sett út í og velt upp úr olíunni. Látið standa í 15-20
mínútur og hrært öðru hverju. Grillið hitað á meðan. Grænmetið er svo tekið
úr olíunni og raðað á grillgrindina. Grillað við meðalhita í nokkrar mínútur
á hvorri hlið, eða þar til grænmetið er meyrt og hefur tekið góðan lit.
E.t.v. er svo afganginum af olíunni dreypt yfir það áður en það er borið
fram.