Grillaðir bufftómatar með pesto
4 stk bufftómatar
2 msk pesto (grænt eða rautt)
2 msk ólífuolía
svartur pipar úr kvörn
Rifinn ferskur parmesan ostur
Salt
Skerið tómatana í tvennt og fjarlægið rótina úr með grönnum hníf. Penslið tómatana með ólífuolíunni og grillið í smá stund með sárið niður. Snúið og kryddið með salti og pipar. Smyrjið pestoinu ofaná og stráið ostinum yfir.