Aðferð
Toppið salatið með ristuðum furuhnetum eða ristuðum graskersfræjum frá
nægtabrunni náttúrunnar. Ef þið notið þurrkaðar baunir þá setjið þær í bleyti
yfir nótt og skiptið um vatn og sjóðið þær gjarnan með smá stórþarastrimli -
kombu - í ca. 1 klst. eða þar til hægt er að kremja þær milli fingra sér. Setjið
brokkolíið út í sjóðandi vatn og teljið upp að 3 og takið það uppúr aftur, líka
hægt að hafa það hrátt. Setjið allt í skál eða á fat og blandið saman.

Meðlæti
Hnetusósa
Hráefni
2 dl hnetusmjör
2 dl vatn
3 msk. tamarisósa eða sojasósa
4-5 döðlur - mjög smátt saxaðar
3 hvítlauksrif, pressuð/smátt söxuð
2-3 msk. sítrónusafi
1/2 búnt ferskt kóríander
1/4 tsk. cayenne pipar - meira ef þú vilt hafa sósuna sterkari
smá sjávarsalt