Grænmetissalsa

4 tómatar
1/3 gúrka
1 rauðlaukur
1/2 dl. ólífuolía
1/2 búnt fersk kóríanderlauf
1 tsk. rósapipar
safi úr tæplega 1 sítrónu
ögn salt og pipar úr kvörn

Skerið grænmetið í frekar grófa bita og blandið saman í skál. hellið yfir olíunni og sítrónusafanum. Stráið saltinu og myljið piparinn yfir. Látið standa í klukkutíma í kæli áður en borið fram.