
Hráefni
120 g blaðlaukur
100 g skalottlaukur
100 g hvítlaukur
60 g steinseljurót
150 g sellery rót
100 g gulrætur
150 g fennel
700 g ferskir tómatar
80 g basil
50 g steinselja
30 g timian
20 g engifer
20 g chilli
40 g koriander
150 g ólífuolía
400 g góð tómatsósa með hvítlauk og basil
2 dl rauðvín (má sleppa)
150 g sykur
150 g rauðvínsedik
Aðferð
Skrælið og skerið grænmetið niður í frekar litla bita og setjið í gegnum
hakkavél eða í mixer þannig að þetta hreinlega líkist hakki. Mallið svo í
ólífuolíunni í ca. 20 - 30 mín. Síðan er tómatsósan, vínið, sykurinn og saltið
sett út í pottinn og látið malla þangað til allur safi er gufaður upp. Bætið þá
út í góðum flottum ólífum, þær sem ykkur finnst bestar og magn eftir því hversu
góðar ykkur finnst ólífur. Bragðbætið þá með salti, pipar og smá sítrónusafa.
Smyrjið eldfast mót og setjið smá af grænmetinu í formið, ofan á koma lasagne
plötur, þá béchamel sósa og svo 50/50 parmesan ostur og venjulegur brauðostur.
Endurtakið þangað til hráefnið er búið. Lokið með góðu lagi af béchamel sósu og
rifna ostinum. Bakið í ofni við 170 gráður. Berið fram með hvítlauksbrauði og
góðu salati.
Meðlæti
Béchamel sósa
Hráefni
500 g mjólk
2 lárviðarlauf
1 saxaður laukur
4 saxaðir hvítlaukar
2 greinar basil
Aðferð
Setjið allt í pott og náið upp suðunni. Hyljið þá með plastfilmu og látið standa
í a.m.k. 30 mín. Bræðið saman 40 g af smjöri og 40 g af hveiti og leyfið að
malla í 5 - 7 mín. Hrærið þá út í sigtaða mjólkina og látið hana malla í 4 mín.
Smakkið til með salti, pipar, rifnu múskati og smá sítrónusafa.