Grænmetisbögglar
1 gulrót(meðalstór)
1/4 sellerírót
8 sveppir
1/4 grænn kúrbítur
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
4 ólífur (má sleppa)
4 msk. Ólífuolía
4 msk. vatn
salt, timian, rósmarín og svartur pipar úr kvörn.
Skerið allt grænmetið gróflega niður og setjið í skál. Blandið samanvið kryddunum, olíunni og vatninu, stráið salti og pipar. Takið 4 stórar arkir af álpappír og setjið grænmetið á miðja örkina og takið svo hornin upp og snúið, þannig að úr verði bögglar. Setjið á vel heitt grillið og látið vera í ca. 20 mín. Mjög gott er að setja bögglana á grillið talsvert áður en lambið fer á. Það skal tekið fram að ekkert grillbragð kemur af grænmetinu á þennan hátt, grillið er bara notað eins og hvert annað eldunartæki til að gufusteikja grænmetið innpakkað í böggla.