Grænmetisbaka

 

Botn:

1 dl haframjöl

2 dl hveiti

100 gr smjörlíki

100 gr skyr

2 msk kalt vatn
 

Grænmeti:

250 gr spergilkál

250 gr blómkál

50 gr sveppir

1 lítil græn paprika

1 lítil rauð paprika

olía til steikingar
 

Sósa:

2 stk egg

2 ½ dl rjómi

4 dl rifinn ostur
 

Blandið saman haframjöli og hveiti, brytjið smjörlíkið út í,
hrærið sykri saman við og vætið í með vatni.
Hrærið vel saman og geymið deigið í ísskáp í 30-40 mín.
Sjóðið spergilkál og blómkál í léttsöltu vatni í 10 mín.
Sneiðið sveppina og skerið paprikurnar í bita,
léttsteikið sveppi og paprikur í olíu.
Fletjið deigið út og setjið í eldfast mót, sem er um 25-28 cm í þvermál,
raðið grænmetinu ofan á deigskelina.
Þeytið saman egg og rjóma, blandið rifna ostinum saman við,
hellið blöndunni yfir grænmetið.
Bakið við 180-200°C í 30 mín og berið fram.