Gómsætt villisveppa-risotto
Hráefni


Handfylli af þurrkuðum villisveppum, 1 vænn rauðlaukur
3-5 hvítlauksrif, 300 g arborio-hrísgrjón, helst frá Gallo (fæst yfirleitt í Melabúðinni)
1 vænt rifsberjavínsglas eða hvítvínsglas. Um það bil einn lítri kröftugt og heitt kjúklinga- og grænmetissoð,
steinselja, olía og parmesanostur eftir smekk.

Aðferð
Sveppirnir eru muldir smátt og mýktir við vægan hita í blöndu af olíu og smjöri ásamt sveppunum. Hrísgrjónunum er blandað saman við og þau látin hitna vel í gegn við heldur meiri hita og steikjast. Þau eiga að verða nær glær á litinn. Því næst er víninu hellt yfir og það látið gufa upp á meðan hrært er stöðugt í grjónunum. Soðinu er síðan hellt í ausuvís yfir grjónin á meðan þau soðna og hrært stöðugt í. Þessi ferill getur tekið um það bil hálftíma. Þegar hrísgrjónin eru soðin en samt stinn er smátt skorinni steinselju sáldrað yfir ásamt vænum slatta af góðri, grænni ólífuolíu og slatta af parmesan. Risóttóið er hægt að borða eitt sér eða sem meðlæti með góðu kjöti eða fiski eða salati