Broccoli & blómkálsbaka
250gr blómkál
250gr broccoli
½ bolli hreint jógúrt
1 bolli rifinn ostur
1 tsk. sterkt sinnep
4 mtsk. brauðrasp (úr heilhveitibrauði eða öðru grófu brauði)
salt
svartur pipar
1. Skera blómkál og broccoli í bita og sjóða í
söltu vatni í 8-10 mínútur. Gott er að láta grænmetið í sigti og láta vatnið
renna af. Setja svo í eldfast mót.
2. Setja jógúrt, rifinn ost og sinnep í skál og hræra saman. Krydda með salt og
pipar og setja þetta svo yfir grænmetið.
3. Setja brauðrasp yfir sósuna.
Eldunartími
Eldfast mót inn í ofn og bakist í 10-15 mínútur við 200°.