Blómkálsostabaka
700 g blómkál
6 dl mjólk
75 g ostur, rifinn
40 g blaðlaukur, sneiddur
40 g smjör
25 g hveiti
2 msk brauðmylsna
1 msk bland aðar hnetur, saxaðar
1 tsk Tabasco Pepper Sauce
½ tsk sinnepsduft
¼ tsk múskat, rifið
salt og pipar
Matreiðsla
Setjið blómkál í sjóðandi vatn og sjóðið í 10 mínútur. Bræðið 15 g af smjöri
(miðað við f. 4) á pönnu, bætið blaðlauknum út á og steikið í 5 mínútur. Takið
blaðlaukinn til hliðar. Bætið afganginum af smjörinu á pönnuna ásamt hveiti,
mjólk, sinnepi, múskat og kryddi. Látið sjóða, hrærið allan tímann, þar til
sósan er mjúk og þykk. Setjið blaðlaukinn aftur á pönnuna og látið malla í 3
mínútur. Takið af hitanum og hrærið 50 g af ostinum (miðað við f. 4) út í þar
til hann er bráðnaður. Látið vatnið renna af blómkálinu og setjið blómkálið í
eldfast mót. Hellið ostasósunni yfir. Blandið brauðmylsnunni saman við afganginn
af ostinum, tabasco, hnetur og krydd. Skvettið sósu yfir og setjið síðan í
heitan ofn í 5 mín. eða þar til rétturinn hefur fengið gylltan lit.
Hollráð
Gott er að nota blómkál og brokkólí til helminga í stað þess að nota eingöngu
blómkál.