Blómkál með steinseljusósu

1 stórt blómkálshöfuð
1 msk edik
1 lítri vatn
salt og pipar,muskat
1 msk smjör
1 msk hveiti
1-2 dl rjómi
1 steinseljubúnt.

Hreinsið og sjóðið blómkálið, þegar það er soðið takið þá eitt glas af blómkálssoði frá. Haldið kálinu heitu.
Bræðið smjör í potti og hrærið hveitinu saman við, þynnið með blómkálssoði þar til sósan er hæfilega þykk, bragðbætið með kryddi og klipptri steinselju. Kálið sett á fat og sósunni hellt yfir.
Gott með reyktu kjöti,kjúlla,kjötbollum og fiski.