Blaðdeigsbögglar með fetaosti og kryddjurtum
1 pakki blaðdeig
200 g fetaostur
2-3 vorlaukar, saxaðir
3-4 msk dill, saxað
2-3 msk minta, söxuð
1 tsk paprikuduft
nýmalaður pipar
100 g smjör
Blaðdeigið látið þiðna. Fetaosturinn settur í
skál og mulinn. Kryddjurtum og
kryddi blandað saman við. Smjörið brætt við vægan hita. Svo er tekin ein
þynna af blaðdeiginu og lögð á vinnuborð (viskastykki breitt yfir afganginn
af deiginu svo það þorni ekki um of). Þynnan pensluð með bræddu smjöri og
skorin í 6 lengjur þvert yfir. 1 msk af ostablöndunni sett á endann á hverri
lengju og hún svo brotin í þríhyrning (byrjað er á að brjóta annað hornið
yfir fyllinguna og svo er hún brotin þvert yfir til að loka fyllinguna inni
og þannig koll af kolli, lengjuna á enda). Hver þríhyrna lögð á
pappírsklædda bökunarplötu og samskeytin látin snúa niður. Haldið áfram þar
til blaðdeigið og ostablandan eru uppurin. Ofninn hitaður í 180 gráður.
Blaðdeigsbögglarnir penslaðir með bráðnu smjöri og bakaðir í 15-20 mínútur,
eða þar til þeir eru gullinbrúnir. Bornir fram volgir eða kaldir.