Baka með sætum kartöflum
Ein stór baka fyrir 8 - 12 manns
1.7 kg grasker (butternut), skrælt og skorið í teninga
200 g laukur (u.þ.b. 2 stk), skorinn í sneiðar
3 hvítlauksrif
400 ml kókosmjólk (1 dós)
salt
svartur pipar
timjan
1 búnt steinselja, söxuð
5 egg
1-2 blöð smjördeig af þykkustu gerð
Laukurinn er léttsteiktur í potti ásamt pipar, timjan og hvítlauk. Síðan er
graskerinu bætt út í og smávatn sett í pottinn ásamt kókosmjólkinni. Látið malla
við miðlungshita þar til graskerið er orðið mjúkt. Takið síðan pottinn af
hellunni og látið kólna eilítið. Kryddið til með salti og pipar. Smjördeigið er
flatt út þannig að brúnirnar skarist vel og þeki 28 cm lausbotna form. Sláið
saman eggin og bætið saxaðri steinseljunni við, hrærið síðan út í
graskersblönduna og hellið henni loks í formið. Bakið við 150°C í 30-40 mín. eða
þar til bakan er stíf.