Nauta-carpaccio
Hráefni:
Nautalundir, fitusprengt og vel hangið kjöt
Maldon-salt
Svartur pipar nýmulinn
Truffluolía eða extra virgin ólífuolía
Sítrónusafi úr ferskri sítrónu
Parmesanostur, ferskur og nýrifinn
Klettasalat
Aðferð:
Skerið nautalundir í 3-5 mm þykkar sneiðar. Baðið í olíu og bankið út með
sléttum kjöthamri þar til þær eru 1 til 2 mm þykkar. Leggið á sléttan stóran
disk og leggið sneiðarnar hlið við hlið út frá miðjum disknum, leggið
smjörpappír yfir og strjúkið vel yfir með sléttri sleif. Hellið olíu og kreistið
sítrónusafa yfir kjötið og kryddið með maldon-salti og pipar, dreifið nýrifnum
parmesanosti yfir og toppið með klettasalati.
