Túnfisktatar
350 gr túnfiskur
50 gr skralottulaukur
30 gr graslaukur
saxað koriander
saxaður kerfill
salt og pipar úr kvörn
extra virgin ólifuolía
6 fransbrauðsneiðar
Allt hráefnið er saxað fínt og blandað saman
ásamt nokkrum dropum af ólífuolíu og kryddi. Brauðið er ristað og stungið út,
tatarinn mótaður og settur ofan á. Borið fram með marineruðu grænmeti.
Marinerað grænmeti:
gulrætur
blaðlaukur (hvíti hlutinn)
rauð paprika (afhýdd)
Grænmetið er skorið fínt (julianne) og marinerað.
Marinering.
½ dl ólífuolía
½ dl hvítvín
safi úr sítrusávöxtum, (sítrónum, lime, appelsínu)
hvítlaukur
engifer
kóriander
salt og pipar
Öllu blandað saman og hellt yfir grænmetið.