Sjávarrétta þrenna

250 gr hörpudiskur
250 gr rækjur
250 gr lax eða lúða eða skötuselur
¼ ds sveppir eða ferskir
1 græn paprika
1-2 gulrætur
10-15 cm púrrulaukur
2 stk skalottulaukur
2 ½ dl rjómi
1 dl hvítvín
1 sítróna
1 tsk Turmeric
1 tsk dijon sinnep
hvítlaukssalt eftir smekk
sojasósa
smjör og olía til steikingar
maisenamjöl til að jafna sósuna með ef vill

Gulræturnar eru hreinsaðar og skornar í strimla (Julianne). Sveppirnir skornir í sneiðar, ef notaðir eru ferskir sveppir, púrrulaukurinn skorinn í strimla, paprikan skorin smátt og skalottulaukurinn líka. Panna hituð og grænmetið svissað, rjóma bætt út á og hvítvíni. Sjóðið aðeins og kryddið, sjóðið áfram þar til sósan fer að þykkna. Ef notaður er lax eða lúða er betra að sjóða fiskinn áður en hann er settur út í sósuna, hann er tekinn í smærri bita áður en honum er bætt út í sósuna. Hörpudiskurinn er hreinsaður (vöðvinn er skorinn frá). Þegar sósan er tilbúin er hörpudiskinum og rækjunni bætt út í og soðið í smá stund, eða þar til að hörpudiskurinn er soðinn. Rétt áður en rétturinn er borinn fram er laxinum eða lúðunni bætt saman við. Borið fram með ristuðu brauði eða í skeljum úr smjördeigi.