Sætkartöflubaggi með valhnetum og geitaosti
Forréttur fyrir 6
2 stk vorrúlludeig
2 sætar kartöflur (skornar í 1 cm teninga)
1 blaðlaukur (skorinn í sneiðar)
200 g geitaostur
handfylli graskerafræ
100 g valhnetur
kókosolía eða venjuleg olía
Kartöflunum og blaðlauknum velt upp úr smá olíu. Bakað við háan hita í um það
bil 20 mínútur. Blaðlaukurinn má brenna smávegis.
Látið kólna en svo blandað við restina af hráefnunum og smakkað til með salti.
Innihaldinu komið fyrir í vorrúlludeiginu. Gott er að vefja utan um það tveimur
lögum af deigi en smyrja a milli með olíu. Pensla deigið með olíu áður en
rúllurnar eru settar í 200 gráðu heitan ofn og bakaðar í um það bil 15-20
mínútur. Borið fram með sætri chilisósu og salati.