Ristuð hörpuskel "Provenciale"

400 gr hörpuskel
2-300 gr niðursoðnir tómatar
2-4 msk fínsöxuð steinselja
6-8 pressuð hvítlauksrif
200 gr smjör
salt og pipar

Hörpuskelin hreinsuð allir seigir vöðvar fjarlægðir og fiskurinn þerraður. Smjörið sett á pönnu og hitað fiskurinn ristaður á pönnunni við frekar mikinn hita. Fiskurinn tekinn af pönnunni. Safinn kreistur úr tómötunum þeir saxaðir frekar gróft og settir á pönnuna ásamt hvítlauk og steinselju, látið þetta krauma smá stund. Þá er fiskinum bætt út á pönnuna ásamt smjöri og látið krauma í nokkrar sek. Að lokum er kryddað með salti og pipar.
ATH. Það er notað mikið smjör við steikinguna á fiskinum og er smjöri bætt í réttinn rétt áður en hann er borinn fram. Þannig að þegar hörpudiskurinn fer á diskinn/fatið á ekki að vera sósa heldur steikt hörpuskel, tómatar, ívafðir steinselju, hvítlauk og umflotið smjöri.
Hörpudiskurinn er borinn fram með ristuðu brauði og smjöri.