Risarækjur með kókos-salsa og parmesan brauði
forréttur fyrir 1

Risarækjur
5 risarækjur, skelflettar og
hreinsaðar
Marínering (má líka nota á fisk eða kjúkling)
3 msk. tamarind paste (fæst í Asian)
safi úr ½ límónu
safi úr ½ sítrónu
1 msk. fljótandi hunang
1 msk. sojasósa
100 g Panko-brauðrasp
(fæst í Asian)
1 msk. ristuð sesamfræ (má sleppa)
handfylli af blönduðu salati
Olía til djúpsteikingar.
KÓKOS-SALSA
¼ rauður laukur, smátt skorinn
¼ mangó, í smáum bitum
¼ papaya, í smáum bitum
1 rauður chili, smátt skorinn
5 g kókosflögur
10 ml kókósrjómi (fæst í Asian)
1 msk. ólífuolía

Blandið saman í skál tamarind paste, hunangi, límónusafa, sítrónusafa og sojasósu. Leggið rækjur í blöndu og látið standa í minnst klukkustund. Takið rækjur og veltið þeim upp úr Panko-brauðraspi og djúpsteikið í stutta stund. Setjið allt sem á að fara í salsasósuna í skál og blandið vel saman. Setjið handfylli af salatblöndu fallega á disk. Raðið rækjum í hring ofan á. Stráið sesamfræjum yfir. Setjið kókossalsablönduna loks ofan á allt saman eða til hliðar eftir smekk.

Parmesan-brauð
500 g hveiti (blár Kornaxpoki)
2 msk. olía
1 msk. Maldon-salt
30 g pressuger (fæst til dæmis í Fjarðarkaupum)
1 msk. fljótandi hunang
1 dós hrein jógúrt eða hálf dós grísk jógúrt
um það bil 2 dl volgt vatn
Parmesan-ostur
Ólífuolía

Leysið pressuger upp í rúmlega 1 dl af volgu vatni og hunangi. Hnoðið saman hveiti, olíu, jógúrt og salti. Bætið gerblöndu út í og hnoðið vel. Bætið vatni við ef með þarf. Látið deig hefast í minnst 40 mínútur. Ef nægur tími gefst er best að slá það niður og láta hefast tvisvar. Uppskrift getur dugað í þrjú lítil snittubrauð eða tvö stærri. Gerið lengjur úr deigi, skerið í það raufar, vætið með ólífuolíu og stráið síðan ríflega af parmesan-osti yfir. Setjið í 200° C heitan ofn í 20-25 mínútur. Gott er að smyrja brauðið með mjúkum geitaosti eða ólífumauki, eða eftir smekk.