Reykt gæsabringa

2 stk. gæsabringa
500 ml vatn
10 g nitritsalt
10 g salt
5 stk. negulnaglar
2 stk. kanilstangir
5 stk. kardimommur, heilar
10 korn rósapipar
30 g reyksag
Blandið öllu kryddinu saman, setjið í vatn og sjóðið í 5 mínútur. Kælið vel. Hreinsið gæsabringur og leggið í kryddlög. Geymið í kæli í sólarhring. Setjið sag í sagpott með loki (eða annars konar lítinn pott) og kveikið undir, helst á útigrilli. Eldið bringur í 15 mínútur á útigrilli við meðalhita. Skerið niður í þunnar sneiðar ef um forrétt er að ræða, annars ekki.

Bláberja-vinaigrette
3 msk. bláberjasulta
2 msk. dion-sinnep
1 msk. sérríedik
1 msk. hunang
1 tsk. pipar, grófmalaður
Blandið öllu saman í matvinnsluvél og maukið vel saman.