Rækjur í brauðkollum (fyrir 6)
Frá Osta- og smjörsölunni

1/4 bolli mjólk
2 msk maísenamjöl
30 g smjör
300 g hreinn rjómaostur
500 g rækjur
1 dós (180 g) water chestnuts
150 g grænar baunir
1/2 saxaður laukur
1/4 bolli hvítvín
2 msk söxuð steinselja
1 söxuð paprika
1/4 tsk salt
pipar
6 brauðkollur


Hitið mjólk og maísenamjöl og látið sjóða þar til það þykknar. Bætið smjöri og rjómaosti út í og hrærið þar til osturinn hefur bráðnað. Látið vökvann leka af hnetunum og skerið þær í sneiðar. Blandið öllu sem eftir er saman við og hitið þar til suðan kemur upp. Látið krauma í 1-2 mín. og takið síðan af hellunni. Berið réttinn fram í brauðkollunum. Þennan rétt má útbúa með góðum fyrirvara og hita síðan upp.