Rækjur GAMBAS PIL PIL Spánskur rækjuréttur

500 gr rækjur
4 hvítlaukar gróft saxaðir
1 stk rauður chili pipar smátt saxaður
2-3 msk steinselja söxuð
ólífuolía

Blandið saman rækjum, hvítlauk, chili pipar og steinselju og skiptið í sex eldfastar skálar eða eina stóra, hellið 2-3 msk af olífuolíu yfir blönduna í hverri skál og bakið í 230°C heitum ofni þar til rétturinn er farinn að taka lit. Berið fram með góðu brauði.