Rækjukokteill


Einn vinsælasti forréttur áttunda
áratugarins.
Hráefni:
400 g fallegar íslenskar rækjur
1 st. lambhagasalat
1 st. tómatur
1 st. sítróna
steinselja
Sósa (hráefni):
100 g majónes
50 g tómatsósa
2 msk. sinnep
1 msk. sweet relish


Aðferð:
Þíðið rækjur og skolið salat vel. Setjið salatið í fjögur glös, síðan rækjur og toppið með sósu. Skreytið með tómötum, sítrónu og
steinselju. Borið fram með ristuðu brauði og smjöri.