Maríneraður fiskur

1 kg ferskur fiskur (ýsa, lúða, búri, steinbítur…)
6-8 sítrónur
1 msk ólífuolía
1 laukur (eða púrra, vorlaukur, rauðlaukur – eftir smekk hvers og eins)
nokkur rif af hvítlauk – má sleppa.
Rauð eða gul paprika, steinselja eða eitthvað fallegt og litríkt til skrauts

Sæt sósa:
1 dós sýrður rjómi
3 matskeiðar majones (allra helst heimatilbúið úr eggjarauðum og góðri olíu)
sinnep (sætt sinnep og Dijon), púðursykur, hunang og dill eftir smekk hvers og eins

Sólarhring áður en bera á fiskinn fram þarf að leggja hann í lög. Fiskurinn er beinhreinsaður, roðflettur og snyrtur í bak og fyrir. Skorinn í netta bita. Laukurinn saxaður smátt og ef þú notar hvítlauk saxaðu hann frekar en að setja í gegnum hvítlaukspressu. Safa úr sítrónunum ásamt olíunni hellt yfir. Látið standa í ísskáp í sólarhring. Stuttu fyrir framreiðslu er fiskurinn veiddur upp úr leginum og papriku eða steinselju stráð yfir til skrauts. Fiskurinn er borinn fram með sósu og heimabökuðu brauði.