Léttgrafin bleikja með pikkluðum rauðrófum, agúrkum og
blómkáli (Forréttur)
BLEIKJA
1 stk. bleikjuflak
50 g Himalajasalt (má
nota hvaða salt sem
er)
50 g sykur
2 stk. stjörnuanís
4 stk. kardimommur
1 stk. kanilstöng
1 stk. rautt greip
Beinhreinsið bleikjuflakið. Takið þurrkryddin og merjið í mortéli. Bætið saltinu
og sykrinum í. Setjið kryddblönduna í mót, bleikjuna þar ofan á og síðan meiri
kryddblöndu
yfir. Grafið í 3 klukkustundir í kæli. Hitið olíu á pönnu. Steikið bleikjuna á
roðhliðinni í um 3 mínútur. Þar sem bleikjan er grafin er mjög gott að hafa
hana létt eldaða.
PIKKLAÐAR RAUÐRÓFUR
2 stk. rauðrófur
50 ml hrísgrjónaedik
50 g sykur
1 msk. hunang
Skerið rauðrófurnar niður. Blandið edikinu, sykrinum og hunanginu saman. Leggið
grænmetið í löginn yfir nótt eða eftir smekk.
Nýmóðins graflaxasósa
100 g majónes
2 msk. púðursykur
2 msk. sojasósa
½ stk. rautt chili
fínt saxað
Ferskt dill eftir
smekk
Blandið öllu hráefninu saman í skál . Saxið dillið og bætið út í.