Laxatartar með kóriander, kavíar og lime-sósu
300 gr lax beinlaus og roðflettur
1-2 skalottlaukur fínt saxaður
¼ rauð paprika smátt söxuð
lítið búnt ferskt kóriander saxað
salt og pipar úr kvörn
kavíar
Hakkið eða grófsaxið laxinn, gjarnan í
matvinnsluvél, (ekki láta hann fara í mauk). Blandið saman við hann
skalottlauknum, paprikunni og kórianderlaufunum og kryddið. Mótið litla turna úr
þessu og setjið 1 tsk af kavíar ofan á.
Sósa:
1 dl sýrður rjómi
safi úr 1 lime
1 tsk dijon sinnep
½ tsk hlynsíróp
salt og hvítur pipar
Öllu blandað saman og kryddað efir smekk. Borið fram með laxinum.