Laxarós á kartöflu
Eftir Rósu Guðbjartsdóttur
1 stór kartafla
salt
sítrónusafi
1 dós sýrður rjómi
eða 2 dl grísk jógúrt
2 skalotlaukar,
smátt saxaðir
2 tsk. wasabi
japanskt piparrótarmauk eða 1 tsk. fersk piparrót
200 g reyktur lax
4 tsk. silungahrogn
dill, til skrauts
Sneiðið kartöflurnar í um 1 sm þykkar sneiðar og sjóðið í
10-15 mínútur. Takið þær síðan úr pottinum og látið kólna. Saltið kartöflurnar
og penslið með sítrónusafa. Hrærið saman sýrðan rjóma, skalotlauk og
piparrótarmauk. Skerið laxinn í sneiðar og skiptið á fjórar kartöflusneiðar.
Skiptið síðan piparrótarsósunni á sneiðarnar og 1 tsk. af hrognum ofan á hverja
og eina. Skreytið með fersku dilli.
