laxarós með piparrótarrjóma
Einfaldir forréttir henta oft einna best með hátíðamat þar sem aðalrétturinn er
það vel útilátinn. Einiberjagrafinn lax með eplaediki og piparrótarrjóma er
mikið lostæti og fljótlegt að framreiða ef rjóminn er útbúinn tímanlega.
Uppskrift er fengin úr jólabæklingi Nóatúns frá árinu 2007.
400 g einiberjagrafinn lax
Eplaedik
1 stk. grænt epli
1 dl ólífuolía
1 msk. söxuð steinselja
1 msk. hvítvínsedik
salt og pipar
Blandið öllu saman nema eplinu og kryddið með salti og pipar. Afhýðið eplið og
skerið það í litlar sneiðar og bætið í olíuna.
Piparrótarsósa
1 dós sýrður rjómi 18% eða 36%
1 msk. hvítvín (má sleppa)
2 msk. rjómi
1 msk. piparrót
salt og pipar
Hrærið öllu saman og látið standa í klukkustund
áður en borið er fram.
Framreiðsla:
Skerið laxinn í sneiðar og myndið rós úr þeim á miðju disksins. Raðið eplum í
kring og hellið eplaedikinu yfir. Berið fram með piparrótarsósu og ristuðu
brauði.
