Laxahringur með piparrótarrjóma
300 gr reyktur lax
300 gr laxaflak
soðið og kælt
100 gr mæjonese
100 gr sýrður rjómi
50 gr mjúkt smjör
smátt saxaður kerfill
og dill
salt og pipar.
Piparrótarrjómi
1 dl rjómi
1 msk. rifin piparrót
salt og pipar
Takið lítinn flanhring, klippið út fjórar lengjur af
bökunarpappír, hver lengja á að vera jafnlöng og innanmál hringsins. Leggið
þunnar sneiðar af reyktum laxi á pappírslengjurnar. Skerið út fjóra hringi úr
sneiðunum í lok.
Roð og beinhreinsið soðna laxinn. Takið hann í sundur í litla bita. Blandið
saman sýrða rjómanum og mæjonesinu, smakkið til með kryddi.
Blandið soðna laxinum, smjörinu ásamt reykta laxinum sem eftir er, skornum í
litla bita út í.
Setjið flanhringinn á þann disk sem bera á réttinn fram á, leggið
pappírslengjuna innan í hringinn með pappírinn að hringnum. Setjið laxablönduna
í sléttið yfirborðið. Lyftið hringnum upp og flettið pappírnum af, endurtakið á
diskunum sem eftir eru, setjið lokin yfir og skreytið. Gott að bera fram með
salati. Ef ekki er til flanhringur, má taka bolla og klæða hann að innan með
plastfilmu og nota í staðinn.
A.T.H. Betra er að eiga við laxablönduna ef sett er út í hana 3 blöð af
matarlími sem leyst eru upp í ½ dl. Af góðu fiskisoði. Þessa uppskrift má einnig
setja í lítið bökunarform og skera í sneiðar.
Piparrótarrjómi:
Blandið saman rjóma og piparrót. Þeytið rjómann smakkið til með salti og pipar.
Kælið vel áður en borið er fram.