Forréttur

Lasange með villisveppum

 

8 lasange plötur

2 msk sólblómaolía

200 g sveppir

200 g villisveppir gjarnan lerkisveppir

50 g parmaostur, rifinn

Sósa

2 msk balsamedik

1 dl ólífuolía

¼ tsk Cayennepipar

3 dl grænar ólífur skornar í tvennt

1 dl ítölsk steinselja fínt söxuð

1 tsk óreganó

 

Aðferð

Hitið ólífuolíu og balsamedik í potti. Kryddið með Cayennepipar. Þegar þessi blanda er orðin heit er ólífum og kryddi blandað saman við. Sjóðið lasagne plöturnar skv. Leiðbeiningum á umbúðum. Saxið sveppina, þó ekki of gróft, - svona í fernt. Hitið sólblómaolíu á pönnu og steikið þar til þeir eru fallega brúnir. Takið lasange plöturnar úr pottinum og setjið á viskastykki.l Fjórar lasagne plötur settar á fjóra diska. Deilið svo sveppunum ofan á lasange plöturnar. Sósan er sett yfir sveppina. Setjið lasange plötu ofan á sveppina og sáldrið parmaosti yfir.