Lambakjöt fyllt með fetaosti og rósmarín
Rósa Guðbjartsdóttir
Góð lambasteik er sannkallaður veislumatur og með fyllingu verður kjötið sérlega
meyrt og bragðgott. Fyrir 4-6.
2 lambainnanlæri
4-5 msk. rautt pestó
3-4 greinar ferskt
rósmarín
4-5 msk. fetaostur
klettasalat, spínat eða
annað grænt salat
salt og grófmalaður
pipar
Berjið lambainnanlærin með buffhamri þar til stykkin eru orðin nokkuð jafn
þykkir og stórir ferningar. Smyrjið pestó yfir stykkin báðum megin og látið
marinerast í a.m.k. hálftíma, gjarnan í sólarhring. Saxið rósmarínnálarnar og
sáldrið yfir kjötsneiðarnar. Skiptið fetaostinum jafnt á kjötstykkin og setjið
smávegis af grænu salati með ostinum. Rúllið kjötstykkjunum upp og lokið þeim
með tannstöngli. Leggið upprúlluð fyllt kjötstykkin í eldfast mót, sáldrið
söxuðu rósmaríni yfir og saltið og piprið. Grillið í 220 gráðum heitum ofni í um
10 mínútur. Lækkið hitann þá niður í 175 gráður og bakið áfram í um 25 mínútur
til viðbótar. Slökkvið á ofninum og látið kjötið vera þar í nokkrar mínútur áður
en það er tekið út og borið fram. Berið fram með sætum kartöflum en þær eru að
mínu mati algjörlega ómissandi sem meðlæti um hátíðarnar. Hér fylgir ein
„hátíðleg“ tillaga að matreiðslu þeirra.
