Krabbafrauð
(fyrir 4)
Frá Osta- og smjörsölunni



250 g frosið krabbakjöt eða 1 dós (200 g) krabbakjöt
50 g smjör
4 msk hveiti
21/2 dl mjólk
1/2 tsk salt
100 g 26% ostur, rifinn
4 egg




Smyrjið eins lítra "soufflémót" og stráið í það brauðmylsnu. Hitið ofninn í 150°C. Látið krabbakjötið þiðna og skerið það í bita eða látið vökvann leka vel af dósakrabbanum. Setjið kjötið í botninn á mótinu. Bakið upp sósu úr smjöri, hveiti og mjólk og saltið. Bætið ostinum út í og hrærið í þar til hann er bráðinn. Takið pottinn af hellunni. Bætið eggjarauðunum út í einni í einu. Blandið vel saman. Þeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við sósuna með sleikju. Hellið þessu yfir krabbakjötið og farið með skeið meðfram brúnum mótsins. Bakið í 1 klst. Mikilvægt er að bera "soufflé" fram strax þar sem það fellur fljótt eftir að það er tekið úr ofninum.