Koníaksristaðir humarhalar (Erla)
300 gr Humar
1 Rauðlaukur
3 Hvítlauksrif
1peli Rjómi
Koníak 3 cl.
Kirsuberjatómatar (smá af safanum)
Salt
Pipar
Hvítlauksduft
Karrý
Smá slurkur Thai Salad Dressing frá THAI CHOICE
Steikið rauðlaukinn og hvítlaukinn við vægan
hita þar til hann verður mjúkur
Snögg steikið humarinn + krydd, hellið koníakinu yfir og kveikið í, bíðið þar
til eldurinn slokknar. Hellið rjómanum, safanum af kirsuberjatómötunum (ekki
mikið) og Thai Salad Dressinguni yfir og látið sjóða. Smakkið til með kryddi.