Klettasalat með steiktum spergli, hleypti eggi og parmessan osti
Fyrir 4
Fjórar
lúkur klettasalat
20 sperglar
4 egg
hvítvínsedik
hálf lúka saxað, ferskt fáfnisgras
1 msk. íslenskt smjör
salt og pipar
safi úr hálfri sítrónu
4 msk. Ólífuolía
100 g ferskur parmessan
Aðferð: Setjið salatið í skál og blandið sítrónusafanum saman við ólífuolíuna og hellið yfir salatið. Raðið svo salatinu jafnt á fjóra diska. Skerið endana af sperglunum, setið þá í sjóðandi vatn í hálfa mínútu og þerrið svo. Bræðið smjör (en ekki brenna) á pönnu og léttsteikið spergilinn í um það bil 3 mínútur. Kryddið með salti, pipar og fáfnisgrasi. Setjið spergilinn ofan á salatið. Setjið vatn í pott og fáið upp suðuna, setjið þá slettu af hvítvínsediki út í. Brjótið egg út í vatnið og látið sjóða í 2-3 mínútur. Takið eggið varlega upp með fiskispaða. Kryddið með smá salti og pipar. Gerið svo eins við hin eggin. Setjið eggin svo ofan á spergilinn og rífið niður parmesanflögur og stráið yfir. Og af því að það eru nú páskar þá má gera vel við sig og strá örlítilli truffluolíu yfir
