Humar með eplarjómasósu
500 gr skelfléttur humar
50 gr smjör
Sósa:
2 stk gul epli
2 stk skalottulaukur
1 dl hvítvín
1 ½ dl rjómi
salt og pipar
1 tsk dijon sinnep
½ teningur fiskkraftur
sósujafnari
Sósan er löguð áður en humarinn er steiktur.
Saxið laukinn og steikið glæran í olíu á pönnu, bætið hvítvíni og rjóma saman
við og sjóðið við vægan hita í 5 mín, þykkið ögn með sósujafnara, bragðbætið með
súputeningi, salti, pipar og sinnepi.
Afhýðið og kjarnhreinsið eplin, skerið þau smátt. Bræðið smjörið á pönnu og
steikið humarinn ásamt eplum í 1-2 mín. Hellið sósunni á pönnuna og látið sjóða
í 1 mín. Setjið á diska og skreytið með fallegu salati og tómatstrimlum.