Forréttur
Humar og svínasíða
frá Gunnari Karli Gíslasyni á Vox
Humarinn
Humarinn er einfaldlega tekinn úr skelinni og steiktur á pönnu upp úr miklu
smjöri og einni grein af rósmarin. Hann er svo kryddaður með smá salti.
Svínasíðan
Kaupið léttreykta svínasíðu og sjóðið í góðu kjúklingasoði við 95 gráður í 5
tíma. Kælið, skerið í hæfilega kubba og steikið jafnt á öllum hliðum uns stökkt
og fallega gyllt. Kryddið með ögn af salti og pipar.
Sósan
Steikið grænmetið í potti, bætið skeljunum og nautasoði út í og sjóðið við mjög
vægan hita í 30 mín. Sigtið og sjóðið niður. Sósan er bætt með smjöri, salti og
sítrónusafa.
Grænmetið
Skerið annars vegar epli og hins vegar sellerírót í jafna og fallega litla bita.
Smakkið til með ögn af söxuðum graslauk, góðri olíu, salti og balsamisku
eplaediki frá Claus Mayer. Ef þú ert í stuði er mjög gott að nýta afskurðinn af
grænmetinu til að búa til góð mauk og bera fram með humrinum.
Prjónninn
Er fallega samansettur af íslensku hrauni og ryðfríu stáli. Hann fæst hjá Óla
Stef á Laugaveginum.
